![]() |
PEGI | ![]() |
|
Lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum
Bannað er að sýna börnum undir lögræðisaldri ofbeldiskvikmyndir og -tölvuleiki, sem og kvikmyndir eða tölvuleiki sem ógna velferð þeirra. Bönnuð er sýning, sala og önnur dreifing á slíku efni til barna sem hafa ekki náð lögræðisaldri. Nánar ![]() Aldursmerkingar á kvikmyndum
Þegar mynd er skoðuð er farið eftir skoðunarkerfi sem er byggt á kerfi NICAM frá Hollandi þar sem viðkomandi skoðunarmaður fer eftir gefnum spurningalistum til að greina hvort að banna þurfi mynd og þá hvert aldurstakmarkið á að vera. Hér má skoða merkingarnar og hvað þær þýða. Nánar ![]() Hvað er PEGI?
Aldursflokkunarkerfi Pan European Games Information (PEGI) er nýtt samevrópskt flokkunarkerfi til að setja aldursmörk fyrir gagnvirka leiki. Kerfinu er ætlað að tryggja að ólögráða börn fari ekki í leiki sem eru ekki við hæfi þeirra aldurshóps. Kerfið nýtur stuðnings framleiðenda á leikjatölvum, þar á meðal PlayStation, Xbox og Nintendo, sem og útgefenda og þróunaraðila gagnvirkra leikja um alla Evrópu. Nánar ![]() Hvernig virkar PEGI?
PEGI-kerfið var þróað á grundvelli fyrri kerfa í Evrópu. Fulltrúar úr samfélagshópum á borð við neytendur, foreldra og trúarhópa tóku virkan þátt í að semja PEGI-matseyðublaðið sem og í mótun og skipulagningu kerfisins. PEGI-kerfið kemur til móts við mismunandi menningarleg viðmið og sjónarmið í öllum þátttökulöndunum. Það nýtur stuðnings meirihluta hlutaðeigandi opinberra stofnana í aðildarríkjunum og allra atvinnugreinasamtaka á sviði gagnvirks tómstundahugbúnaðar í Evrópu. Nánar ![]() Fyrir hvað standa merki PEGI og efnisvísar?
PEGI notast við tvær tegundir táknmynda fyrir eftirfarandi: - Innihaldsflokk og Aldursflokk Báðir flokkar eru betur útskýrðir hér Nánar ![]() Hvernig eru leikir flokkaðir með nýja PEGI-kerfinu?
PEGI notast bæði við sjálfsmatseyðublöð, sem send eru í gegnum Netið, og skoðar leiki til að ákvarða viðeigandi flokkun þeirra. Fyrst svarar útgefandi leiksins spurningum á eyðublaði á Netinu og sendir þau til NICAM (NICAM sinnir daglegum rekstri PEGI kerfisins fyrir hönd ISFE). Nánar ![]() Leit að flokkun leiks
Viljir þú vita hvaða flokkun gildir um tiltekinn leik, er auðvelt að finna þær upplýsingar í gagnagrunni PEGI. Gagnagrunnurinn sýnir vottunarmerkið og þá efnisvísa sem gilda um leikinn. Hann hefur að geyma upplýsingar um alla leiki sem hafa verið flokkaðir hingað til með PEGI-kerfinu, sem hefur verið í notkun síðan 3. janúar 2003. Nánar ![]() Frekari upplýsingar og kvartanir
Allar frekari upplýsingar um PEGI er að finna www.pegi.info Hægt er að senda fyrirspurnir á íslensku á pegi@smais.is Ef þú vilt leggja fram kvartanir vegna aldursmerkingar á tölvuleik, smelltu þá á "nánar" Nánar ![]() |
![]() |
Bæklingurinn ungt fólk og internetið | Könnun | ![]() |
|
Að skiptast á tölvuskrám. Leiðbeiningar fyrir foreldra. |
|




Aldursflokkunarkerfi Pan European Games Information (PEGI) er nýtt samevrópskt flokkunarkerfi til að setja aldursmörk fyrir gagnvirka leiki. Kerfinu er ætlað að tryggja að ólögráða börn fari ekki í leiki sem eru ekki við hæfi þeirra aldurshóps. Kerfið nýtur stuðnings framleiðenda á leikjatölvum, þar á meðal PlayStation, Xbox og Nintendo, sem og útgefenda og þróunaraðila gagnvirkra leikja um alla Evrópu. 
