| samþykktir
Um okkur

SMÁÍS (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) voru stofnuð 1992 til að vera hagsmunagæsluaðili rétthafa myndefnis á Íslandi og hafa ýmis hagsmunarmál rétthafa á sínum snærum. Félagsmenn samtakanna hafa rétt til dreifingar á yfirgnæfandi hluta kvikmynda- og sjónvarpsefnis og tölvuleikja sem eru á íslenskum markaði.  Félagsmenn eru kvikmyndahús, helstu útgefendur kvikmynda- og sjónvarpsefnis, sjónvarpsstöðvar og helstu dreifingaraðilar tölvuleikja. SMÁÍS er samstarfsaðili MPA hér á landi.

 

Helstu meginmarkmið samtakanna eru m.a.;

 

  • Að vera sameiginlegur vettvangur fyrir útgefendur, dreifingaraðila og framleiðendur myndefnis á Íslandi.
  • Að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart löggjafanum, hinu opinbera, neytendum, erlendum samtökum sama eðlis, myndbandaleigum, fjölmiðlum og öðrum, sem beint eða óbeint eru viðskipta- eða lagalega tengdir dreifingu myndefnis hér á landi.
  • Að vinna að því markmiði að hafa með því eftirlit, að myndefni sem á boðstólum er hér á landi til útleigu eða sölu sé dreift af dreifingaraðilum sem hafi til þess réttar dreifingarheimildir.
  • Að stuðla að samræmingu útgáfumála á myndefni til hagsmuna fyrir neytendur.
  • Að standa saman að réttaraðgerðum gegn hvers konar skerðingum á lagalegum rétti og öðrum hagsmunum félagsmanna hér á landi.
  • Að vera ráðgefandi aðili fyrir ýmis hagsmuna- og tæknileg málefni sem viðkoma útgáfu myndefnis.

Meðlimir samtakana eru:

  • 365 Ljósvakamiðlar
  • Bergvík
  • Myndform
  • RÚV
  • Sam-Félagið
  • Sena
  • Skjárinn
  • Motion Picture Association

 

SMÁÍS vinnur í nánu samstarfi við Alheimssamtök kvikmyndarétthafa (MPA – Motion Picture Association), sem öll stærstu kvikmyndastúdíóin í Hollywood standa að.  SMÁÍS hefur til margra ára átt gott samstarf með Lögmönnum Laugardal, enda mörg verkefni í starfsemi samtakana sem þarfnast lögfræðilegra ígripa. Þá er SMÁÍS  í samstarfi við SAMTÓN (Samtaka Rétthafa Tónlistar á Íslandi) vegna ýmisskonar kynningarmála.  SMÁÍS tekur einnig  þátt í samstarfi sambærilegra samtaka á norðurlöndum (NAPO - Nordic Anti Piracy Operations).  Auk þess að berjast gegn ólöglegri dreifingu á efni félagsmanna vinna samtökin að ýmsum hagsmunarmálum fyrir rétthafa hér á landi og er ráðgefandi fyrir ýmis hagsmuna- og tæknileg málefni sem viðkoma útgáfu myndefnis. 

 

Hér má sjá samþykktir félagsins.

Bæklingurinn ungt fólk og internetið Könnun

Að skiptast á tölvuskrám. Leiðbeiningar fyrir foreldra.

                                     

Hvernig horfir þú á kvikmyndir?
Kaupi DVD
VoD
Kvikmyndahúsi
Fer á leigu
Sæki á jafningjaneti
Sjónvarpsstöð




SMÁÍS - Samtök Myndrétthafa á Íslandi. Laugavegi 182, 105 Reykjavík. Sími 588-3800 | smais@smais.is | Skilmálar